Varðandi veikindi leikskólabarna og lyfjagjafir
Vegna fyrirspurna um það, hvenær þau börn megi sækja leikskóla, sem eru veik eða á einhvern hátt sýkt, þá mæla heimilislæknar með eftirfarandi:
Barn með hækkaðan líkamshita (38° eða hærra við endaþarmsmælingu), verki eða slen af einhverjum orsökum ætti ekki undir neinum kringumstæðum að dveljast í leikskóla. Ástæður þeirrar ráðleggingar eru fyrst og fremst viðleitni til að draga úr vanlíðan barnsins, sem í leikskólanum verður fyrir mun meira álagi en heima og nýtur ekki sömu umönnunar og hjá foreldrum. Líkamshiti upp að 38° þarf ekki að benda til sjúkleika, en sé um vanlíðan að ræða, ber að hlífa barninu við álagi leikskóladvalar.
Barn smitar mest þegar það er að veikjast og veikt barn skal dvelja heima þar til það hefur verið hitalaust í 1 – 2 sólarhringa. Þegar barn kemur aftur í leikskólann eftir veikindi þarf það stundum að vera inni í 1 – 2 daga.
...
Lyfjagjafir á leikskólatíma eru í flestum tilfellum óþarfar, því aðeins í undantekningartilvikum þarf að gefa lyf oftar en þrisvar á dag og þó að lyfið þurfi að gefa þrisvar, þá skiptir ekki máli þó 8 tímar líði á milli gjafa. Undantekningar á þessu gætu verið sykursýkis-, asthma- og ofnæmislyf og hugsanlega lyf við ofvirkni. Í slíkum tilvikum er ráðlegt að fá skrifleg fyrirmæli frá lækni til að sýna leikskólastarfsmönnum.
Frá heilsugæslulæknum Akranesi