Skólanámskrá Skýjaborgar
Aðalnámskrá fyrir leikskóla var gefin út í júní 1999, en unnið hafði verið að gerð námskráa fyrir öll stig íslenska skólakerfisins. Aðalnámskrá leikskóla er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstörf í leikskólum þar sem stefnt er að eðlilegri samfellu og stígandi á námsleiðinni. Aðalnámskrá er einnig ætlað að auðvelda foreldrum að fylgjast með vinnunni í leikskólunum og árangri starfsins.
Á grundvelli Aðalnámskrár skal hver leikskóli semja sína skólanámskrá. Leikskólinn Skýjaborg byrjaði að vinna sína skólanámskrá árið 2004 og er hún í sífelldri endurskoðun.
Nýjasta útgáfa skólanámskrá Skýjaborgar (2010) var unnin af starfsfólki leikskólans og foreldraráð fékk einnig tækifæri til að fara yfir námskránna og koma með hugmyndir.