Stefna Skýjaborgar
Virðing - Sjálfstæði - Samvinna
Í leikskólanum Skýjaborg starfa saman sjálfstæðir einstaklingar sem bera virðingu fyrir umhverfi sínu.
Meginmarkmið Skýjaborgar er að börnin læri:
- virðingu
- sjálfstæði
- samvinnu
- sjálfshjálp
- jákvæð samskipti
- kurteisi
- umburðarlyndi
Í því samfélagi sem við búum í er nauðsynlegt að öðlast færni í þáttum sem leikskólinn leggur áherslu á (meginmarkmið). Þegar starfsfólk vinnur með börnunum þá hefur það þessi hugtök til leiðbeiningar og geta alltaf spurt sig þeirra spurningar hvort viðbrögð/starf þeirra leiða til þess að meginmarkmið leikskólans náist.