Veikindi/leyfi:
Mikilvækt er vegna starfsemi leikskólans, að börnin mæti eins reglulega og við er komið. Ef barn er veikt eða í fríi, vinsamlegast látið vita í síma: 4338790 (Skýjaborg).
Mikil smithætta er þar sem mörg lítil börn dvelja saman og er nauðsynlegt að börn dvelji a.m.k. einn dag heima eftir veikindi. Nokkrum erfiðleikum er bundið að halda barni inni í leikskólanum eftir lasleika, en það er hægt í 2 daga sé þess óskað.
Útbúnaður.
Ath vel: alltaf skal hafa meðferðis útifatnað: vindbuxur og/eða regnföt ásamt vettlingum og húfu og kuldagalla yfir vetrartímann. Börnin þurfa alltaf aukaföt vegna ýmissa “eðlilegra” óhappa. Munið að merkja sérstaklega útiföt og stígvél.
Leikföng.
Í leikskólanum er nóg af leikföngum og er ekki æskilegt að börnin komi með þau með sér að heiman. Við höfum sérstakan leikfangadag, fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði, þá geta þau komið með að heiman hæfilega mikið af leikföngum. Snjóþotur eru ekki leyfðar vegna slysahættu en svokallaðir “þoturassar” eru leyfðir.
Engin ábyrgð er tekin á leikföngum sem börnin hafa meðferðis.
Afmæli:
Sú venja hefur skapast að eigi barn afmæli má það koma með eitthvað til að bjóða hinum börnunum og haldið er upp á daginn um leið.
Vinsamlegast hafið samband við okkur áður.
Ýmislegt:
Leikskólagjöld eru innheimt fyrirfram með gíróseðli. Segja þarf upp tímanlega plássi ef barn hættir. Ef eitthvað kemur uppá varðandi börnin eða leikskólann hafið samband og þá mun tími verða fundinn til að ræða málin.
Daglegt líf í leikskóla
Daglegt líf í leikskóla markast af föstum athöfnum sem lúta að líkamlegum þörfum barna og heilsu. Á ákveðnum tímum matast börn, þvo sér, hvíla sig og sofa. Dagskipulagið á að sníða að þörfum barna, þroska þeirra, aldri, samsetningu barnahópsins, dvalartíma og öðrum ytri skilyrðum. Í skipulagi leikskólastarfs þarf að ríkja jafnvægi á milli mismunandi þátta, á milli félagslegra samskipta og einstaklingsverkefna og á milli hvíldar og þátttöku í leik og starfi.
Námssvið
Námssvið leikskóla eru áhersluþættir í leikskólauppeldi. Þau eru hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi, menning og samfélag. Námssviðin skarast og þau eru samofin undirstöðu leikskólastarfsins: leik daglegri umönnun og almennri lífsleikni.
Hreyfing
Börn hafa ríka þörf fyrir að hreyfa sig frjálst og óhindrað. Í leikskóla ber því að leggja áherslu á hreyfingu barna og hreyfiuppeldi. Öll hreyfing stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan.
Málrækt
Tungumálið er miklvægasta tæki manna til boðskipta. Sameiginlegt tungumál ( móðurmál) tengir fólk saman og eflir samkennd þess. Því ber að leggja áherslu á málrækt: í samtölum, með krefjandi spurningum með því að lesa fyrir barnið, segja því sögur og kenna því kvæði og þulur. Einnig skal hvetja barn til að spyrja, segja frá og hlusta með athygli.
Myndsköpun
Börn hafa ríka þörf fyrir að tjá sig með myndmáli. Frjáls og skapandi myndgerð barna mótast af þroskastigi þeirra, reynslu og uppvaxtarskilyrðum. Megináherslu ber að leggja á sköpunarferlið sjálft sem er mikilvægurþáttur í alhliða þroska barna. Ber því að ýta undir sjálfstæða myndsköpun en forðast að láta öll börn vinna eins.
Tónlist
Söngur
Í leik syngja börn, hjala, söngla og raula af einskærri ánægju og lífsgleði. Mikilvægt er að veita þessum sjálfsprottna söng og söngli barna eftirtekt og örvun.
Hreyfing og hrynjandi
Með samleik tóna og hreyfinga nemur barn grunnatriði tónlistar. Barn getur lýst með hreyfingum mismunandi tónlengd, tónhæð, blæ, styrk og formi þeirrar tónlistar sem það heyrir.
Hljóðgjafar og hljóðfæri
Barn skynjar smám saman og greinir margvísleg hljóð úr umhverfi sínu og breytileika þeirra. Ýmsa hljóðgjafa er hægt að nota í uppeldi barna. Leikur barna á hljóðfæri verður að byggjast á áhhuga þeirra og löngun til að gera tilraunir með hljóð og tjá sig með þeim.
Hlustun
Hluti tónlistaruppeldis er að hlusta á margvísleg hljóð. Barn kannar hljóðheim sinn, hlustar á umhverfið og náttúruna. Börn þurfa að læra að hlusta, ekki einungis að heyra.
Náttúra og umhverfi
Barn þarf að kynnast fjölbreytileika náttúrunnar,komast í lifandi tengsl við hana og njóta hennar. Opna þarf augu barns fyrir fegurð náttúrunnar og vekja virðingu fyrir henni og ábyrgðarkennd. Reynsla barns af náttúrunni fléttast iðulega inn í leik þess og myndsköpun.
Menning og samfélag
Barn kynnist smám saman því samfélagi sem það lifir í. Leikskólar eru í mismunandi umhverfi í atvinnulegu,félagslegu og menningarlegu tilliti eftir því hvar þeir eru – í borg eða bæ, við sjó eða í sveit. Leikskólastarf mótast af þessum ytri skilyrðum.
Ferðir – nágrennið
Áhuga barna og eftirtekt ber að efla og víkka áhugasvið þeirra og sjóndeildarhring með skoðunarferðum í nágrenni leikskólans og með margvíslegum heimsóknum í þjónustu- og menningarstofnanir.
Tölvur
Barn í leikskóla þarf að kynnast tölvu og læra að nota hana á sinn hátt. Leggja ber áherslu á samstarf barna í tölvuvinnu því að þar eru þau fús að þiggja ráðleggingar og hjálp frá félögum sínum og deila reynslu með þeim.
Gagnkvæmur trúnaður milli foreldra og starfsfólks er forsenda þess að barninu líði vel.
Með ósk um gott farsælt samstarf
Sigurður Sigurjónsson leikskólastjóri