Skólaheimsóknir veturinn 2011 - 2012
Samstarf leikskólans og grunnskólans er í sífelldri þróun og er endurskoðað að hausti ár hvert.
Í Aðalnámskrá leikskóla (2011) segir að skólaganga barna eigi að mynda samfellda heild þannig að reynsla og nám barna á fyrri skólastigum nýtist þeim á næsta skólastigi. Mikilvægt sé að nám og uppeldi í grunnskóla byggi á fyrri reynslu og námi barna til að skapa þeim öryggi og ný námstækifær. Þannig er mikilvægt er samstarf sé milli leikskóla og grunnskóla til að stuðla að samfellu í uppeldi og menntun barnsins og að það upplifi grunnskólann sem eðlilegt framhald af leikskólanum.
Gott samstarf er á milli leikskóla og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit og er það endurskoðað á hverju hausti. Gagnkvæmar heimsóknir nemenda leikskólans og grunnskólans og samvinna kennara eru helstu áherslur okkar í skólasamstarfinu. Þegar barnið byrjar í grunnskólanum hefur það kynnst tilvonandi kennara sínum, skólabyggingunni, skólalóðinni, skólastofunni og íþróttahúsinu.
Að vori fara foreldrar ásamt börnum sínum á fund í grunnskólann þar sem þeir skoða skólann og hitta skólastjórann og þann kennara sem kemur til með að kenna börnunum í fyrsta bekk og vorskólinn er kynntur.
Í apríl og maí er vorskólinn í 4 skipti, en þá fara börnin með skólabílnum heiman frá sér og eru 4 heila daga í skólanum og fá að kynnast hinum ýmsu námsgreinum grunnskólans. Leikskólakennari er með þeim fyrsta daginn.
Auk þess hafa börnin farið í íþróttir í Heiðarborg í tvö ár áður en skólaganga hefst.
Í vetur munu tveir elstu árgangarnir (börn fædd 2006 og 2007) fara alla fimmtudaga í október og nóvember í grunnskólann. Hver stund mun byrja á heimsókn í Heiðarborgina þar sem Imba íþróttakennari mun taka á móti okkur og fara með okkur í leiki í íþróttasal. Elsti hópurinn mun síðan fara í sund með henni í smá stund eftir hvern íþróttatíma. Eftir íþróttir býðst okkur að fara í grunnskólann og nýta okkur aðstöðuna í listgreinarýmunum ásamt því að fá tækifæri til að hitta listgreinakennarana þau Samma tónmennta- og smíðakennara og Helenu myndlistar- og útikennslukennara.
Við ætlum að vinna verkefni sem tengjast tónlist, myndmennt og umhverfismennt í þessum tímum.
Elstu börnin munu einnig fá tækifæri til að heimsækja vini sína í 1. bekk og Siggu Láru kennara, taka þátt í sameiginlegum verkefnum og æfa sig í að vera í skóla. Áætluð heimkoma í leikskólann aftur er síðan rétt fyrir hádegismat.
Við biðjum alla í árgöngum 2006 og 2007 um að vera komna í leikskólann rétt fyrir kl. 9 á fimmtudögum í október og nóvember þar sem rútan sækir okkur kl. 9. Allir eiga að koma með íþróttaföt og elsti hópur með sundföt og handklæði.
Á degi íslenskrar tungu munu 3ju bekkingar koma til okkar og lesa fyrir okkur.
Í október mun 1. bekkur koma í heimsókn í leikskólann.
Frekara samstarf skólanna felst m.a. í þátttöku leikskólans í útikennsludegi í Fannahlíð þar sem grunnskólinn var einnig við leik og störf. Byrjendalæsi er samstarfsverkefni kennara á báðum skólastigum þar sem sameiginlegur grunnur er byggður upp fyrir komandi lestrarnám og læsi barna er þróaður.
Frekari samstarfsverkefni kennara og nemenda eru í þróun og verða kynnt frekar þegar líður á veturinn.