a aa aaa

Skólaheimsóknir og samstarf skólastiganna

Í vetur munu tveir elstu árgangarnir (börn fædd 2006 og 2007) fara alla fimmtudaga í október og nóvember í grunnskólann. Hver stund mun byrja á heimsókn í Heiðarborgina þar sem Imba íþróttakennari mun taka á móti okkur og fara með okkur í leiki í íþróttasal. Elsti hópurinn mun síðan fara í sund með henni í smá stund eftir hvern íþróttatíma. Eftir íþróttir býðst okkur að fara í grunnskólann og nýta okkur aðstöðuna í listgreinarýmunum ásamt því að fá tækifæri til að hitta listgreinakennarana þau Samma tónmennta- og smíðakennara og Helenu myndlistar- og útikennslukennara.

Við ætlum að vinna verkefni sem tengjast tónlist, myndmennt og umhverfismennt í þessum tímum.

Elstu börnin munu einnig fá tækifæri til að heimsækja vini sína í 1. bekk og Siggu Láru kennara, taka þátt í sameiginlegum verkefnum og æfa sig í að vera í skóla. Áætluð heimkoma í leikskólann aftur er síðan rétt fyrir hádegismat.

 

Við biðjum alla í árgöngum 2006 og 2007 um að vera komna í leikskólann rétt fyrir kl. 9 í október þar sem rútan sækir okkur kl. 9. Allir eiga að koma með íþróttaföt og elsti hópur með sundföt og handklæði.

 

Á degi íslenskrar tungu munu 3ju bekkingar koma til okkar og lesa fyrir okkur.

 

Í október mun 1. bekkur koma í heimsókn í leikskólann.

 

Frekara samstarf skólanna felst m.a. í þátttöku leikskólans í útikennsludegi í Fannahlíð þar sem grunnskólinn var einnig við leik og störf. Byrjendalæsi er samstarfsverkefni kennara á báðum skólastigum þar sem sameiginlegur grunnur er byggður upp fyrir komandi lestrarnám og læsi barna er þróaður.

 

Frekari samstarfsverkefni kennara og nemenda eru í þróun og verða kynnt frekar þegar líður á veturinn.

 

Fréttabréf Regnbogans haust 2011

Í vetur eru þrír árgangar á Regnboganum og skiptast þeir þannig:         

            

Kanínuhópur, yngsti hópurinn með 9 börn og hópstjórar Árdís og Arndís Rós.

 

Drekahópur, miðhópur með 6 börn, hópstjórar Magga Sigga og Lára.

 

Kisuhópurinn, elsti hópur með 6 börn hópstjóri Ragna.

 

Við höldum áfram að vera skóli á grænni grein og leggjum áherslu á nátturuna og umhverfið og gildin okkar; virðing, sjálfstæði og samvinna.

 

Við flokkum rusl, endurnýtum, endurvinnum hluti, búum til pappir og erum dugleg að vera úti í nátturunni. Kanínuhópurinn fer á fullt í okt. og nóv. að flokka ruslið á fimmtudagsmorgnum.

 

Hver hópur á sér leynstað úti í nátturunni sem hann heimsækir reglulega og tekur myndir af sér þar; haust, vetur, vor og sumar, svo þau sjái muninn á árstíðunum í leiðinni.

 

Við munum starfa áfram í anda John Dewy, með könnunaraðferðina þar sem börnin velja sér viðfangsefni og við rannsökum það.  Við tökum eitt verkefni fyrir áramót og annað eftir áramót.

 

Kanínuhópurinn yngsti hópurinn verður með „fjölskylduna“ þar sem hann er búinn að vinna vel með „ég sjálfur“ á Dropanum, þá er gott framhald á því að taka fjölskylduna.   Eftir áramót tekur hann vináttuna sem er mjög nauðsynlegt hjá svona frumskógarlögmálsaldri.

 

Hinir tveir hóparnir velja sér sjálfir viðfangsefnið með því að hver einstaklingur kemur með tillögu og svo eru kosningar.

 

Tveir eldri hóparnir fara í íþróttir upp í skóla í okt. og nóv, 1 sinni í viku og fá líka að fara á bókasafnið og söng-og myndlistastofuna. Elsti árgangurinn fer einnig í sund með Imbu leikfimikennara.

 

Þessir 2 hópar vinna líka með stærðfræðiverkefni Numicon þar sem þau fá tilfinningu fyrir talnagildi tölustafsins eins og t.d. að 5 er einum minna en 6 og einum meira en 4.

 

Einnig vinnum við með alla deildina í leikskólalæsi það er að við verðum leikskólalestrarvæn. Þá veljum við bækur með gæðatexta til að lesa og skoðum nánar. Veltum fyrir okkur hvað orðin þýða og hvaða merkingu við leggjum í textann. Við munum  hafa læsishvetjandi umhverfi, þar sem áhersla er lögð á gæðatextann,  þulur, vísur og söngva.

Markviss málörvun fellur að sjálfsögðu undir þenna kafla líka.

-      við viljum með þessu styrkja málvitund barnanna

-      veita skipulega málörvun sem stuðlar að eðlilegri færni í íslensku.

 

Einnig notum við töfrastein sem börnin halda á þegar þau hafa orðið og mega þá segja frá hvað þau voru að gera heima eða segja okkur sögu, svona létt framsögn.

 

Veðurfræðing höfum við líka en hvert barn fær að vera veðurfræðingur í einn dag og segir okkur hvernig veðrið er og hvað föt við þurfum þá að klæðast í útiverunni.

 

Við erum líka með þjóna á hverjum degi og þá eru myndir af barninu(þjóninum) frami á gangi, hvað var í matinn og hvernig börn borða.

 

Í fyrra byrjuðum við á að gera ferilsskrár fyrir börnin og í hana munum við láta 3-4 verk barnanna á önn og 1 blaðsíðu af ljósmyndum af þeim í starfi. Þessa möppu fá þau afhenta þegar þau svo útskrifast úr leikskólanum.

Elsti hópur á ekki ferilsskrá en hann mun búa sér til útskriftarmöppu.

 

Okkur langar til að biðja foreldra að merkja föt barnanna, nota litlu miðana sem eru í fötunum og nóg er að setja upphafstafi þeirra þar.   Við eyðum of mikið af okkar tíma í að reyna að finna út hver á hvaða föt.

 

Hópastarfið hjá okkur er kl  9-10 alla morgna nema föstudaga þá er val milli 9-10. Mjög gott væri að allir væru komnir kl 9 þá morgna sem hópastarf er.

 

Við viljum taka það fram að við leggjum mikla áherslu á frjálsa leikinn, þar ná börnin mesta þroskanum sínum þá þessum árum.  Við leggjum líka áherslu á opinn efnivið eins og einingarkubbana, sem við vinnum mikið með.

 

 

Fréttabréf Regnbogans haust 2010

Í upphafi vetrar eru 20 börn á Regnboganum. Eins og áður hefur verið gert skiptum við deildinni í hópa eftir aldri.  Í Stórahóp (2005) verða 5 börn, í Miðhóp (2006) verða 7 börn og í Litlahóp (2007) verða 8 börn.

 

Starfsfólk Regnbogans er:

Sara Margrét Ólafsdóttir, deildarstjóri.

Magga Sigga, leikskólakennari.

Inga Bryndís Ingvarsdóttir, íþróttakennari.

Árdís Hauksdóttir, leiðbeinandi.

 

 

Bergrós Ólafsdóttir talmeinafræðingur verður hjá okkur annan hvern fimmtudag í vetur.  Mun hún sjá um talþjálfun og málörvun í leikskólanum. 

 

Nú er vetrarstarfið komið í gang á Regnboganum.  Allir hópar eru að vinna með könnunaraðferðina.  Stórihópur (Svarti jagúar) er að rannsaka fiska, Miðhópur (Fjallahópur) er að rannsaka himingeiminn og Litlihópur (Drekahópur) er að rannsaka fjölskylduna.

 

Á föstudögum ætlum við að hitta börnin á Dropanum í söngsamveru, við erum þegar byrjuð og það hefur gengið vel.

 

Miðvikudaginn 15. september klukkan 20.00 verður hin árlegi foreldrafundur þar sem vetrarstarfið verður kynnt og foreldrafélagið verður með aðalfund.

 

 

Með von um gott samstarf í vetur, kveðja starfsfólk Regnbogans.

 

 

Heimsóknin á Súlunes.

Við heimsóttum Súlunes í dag.  Veðrið lék við okkur og móttökurnar alveg frábærar.  Við byrjuðum á því að skoða fjósið svo fórum við og kíktum á hestana og fengum að fara á hestbak.  Þá var haldið niður í fjöru þar sem við lékum okkur lengi.  Dagný var búin að baka handa okkur skúffuköku og við fengum mjólk beint úr tanknum, rosa gott.  Svo lékum við okkur aðeins lengur í yndislegu umhverfi. Myndir komnar á myndasíðu. 

Elsku Dagný, Björgvin og Ástdís Birta, takk fyrir móttökurnar.

 

Heimsókn á Súlunes

Á föstudaginn 12. júní ætlar Stórihópur og Miðhópur í heimsókn til Ástdísar Birtu á Súlunes.  Við ætlum að fara í fjöruna og kannski kíkjum við á kýrnar.  Leggjum af stað frá leikskólanum klukkan 10.00.

 

Gönguferð í skógræktina.

Tveir elstu hóparnir á Regnboganum fóru í gönguferð í skógræktina í Fannahlíð mánudaginn 8. júní.  Börnin léku sér í skógræktinni og Gugga kom með hádegismatinn sem við borðuðum úti.  Börnin voru með bakpoka með sér sem umhverfisnefnd Hvalfjarðarsveitar gáfu leikskólanum.  Í bakpokanum eru stækkunargler sem voru vel notuð og krukkur sem þau gátu safnað kóngulóm og gróðri í .  Börnin voru alveg rosalega dugleg að ganga.  Skemmtilegur dagur með skemmtilegum krökkum í skemmtilegu umhverfi.

 

Útskrift elstu barna.

Miðvikudaginn 27. maí var útskrift elstu barnanna okkar sem eru að fara í grunnskóla í haust.  Börnin sungu, fengu útskriftarbækurnar sínar og birkitré að gjöf frá leikskólanum.  Foreldrarnir buðu upp á útskriftarveislu á eftir.  Við viljum þakka börnunum og foreldrum þeirra fyrir samveruna og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni. 

 

 

Útskriftarferð í Vatnaskóg 15. maí 2009.

Föstudaginn 15. maí 2009 fór elsti hópur í útskriftarferð í Vatnaskóg.  Lagt af stað klukkan 10.00. Þar hittum við börn frá 5 öðrum leikskólum.  Við byrjuðum að hittast í Gamla skála.  Þar var sungið og farið í leiki.  Svo var farið í hádegismat í matsalnum þar sem boðið var upp á Vatnaskógapizzur.  Eftir pizzuveisluna fórum við í gönguferð í skóginn þar sem við settumst inn í kúluhús og fengum heitt kakó.  Eftir gönguna fórum við í útileiki á túninu.  Eftir skógarferðina fórum við í Vatnaskógartívólí í íþróttahúsinu.  Þar voru loftdýnur og hoppukastalar.  Börnin komu öll rennandi sveitt út eftir fjörið þar.  Þá var haldið í matsalinn aftur þar sem boðið var upp á skúffuköku og mjólk.  Við enduðum daginn á því að fara niður að vatninu að leika okkur.  Við fengum alveg frábært veður.  Komið var aftur  í leikskólann klukkan 16.15 með þreytta og glaða krakka.  Frábær dagur það.

 

Vettvangsferð á Akranes 13. maí 2009.

Tveir elstu hóparnir okkar fóru í vettvangsferð á Akranes miðvikudaginn 13. maí 2009.  Við lögðum af stað frá Skýjaborg með rútu klukkan 9.00 þaðan sem leiðin lá á Slökkvistöð Akraness og Hvalfjarðarsveitar.  Þar tók hann Þráinn slökkviliðsstjóri á móti okkur.  Hann sýndi okkur alla bílana, leyfði okkur að heyra sírenuhljóðin og við prufuðum að sprauta úr brunaslöngu.  Okkar fannst þetta alveg rosalega skemmtilegt. 

Næst gengum við í leikskólann Akrasel.  Þar lékum við okkur úti á lóðinni og fengum líka að koma inn að leika.  Krakkarnir á Akraseli sungu fyrir okkur og við sungum eitt lag fyrir þau.  Frábærar móttökur þar.

Nú voru allir orðnir svangir og gengum við á veitingastaðinn Galító.  Þar fengum við pizzur og meðlæti.  Við vorum alveg rosalega kurteis og dugleg að borða.  Börnin eiga hrós skilið fyrir það.

Eftir matinn tókum við strætó tilbaka í leikskólann.  Fyrst að Hvalfjarðargöngum, þar skiptum við og tókum annan strætó í Melahverfi og komum í leikskólann klukkan 14.30.

Alveg frábær dagur með frábærum krökkum.

 

 

 

Útskriftarferð elsta hóps 

Miðvikudaginn 21. maí 2008 fórum við í elsta hóp í hina árlegu útskriftarferð í Vatnaskóg. Dagurinn var tekinn snemma og kom hún María á rútunni sinni og sótti okkur hingað á leikskólann. Þegar við komum í Vatnaskóg var strax haldin smá samverustund með hinum leikskólunum sem þar voru. Það var einn leikskóli frá Reykjavík og einn af Kjalarnesi sem þarna voru. Í samverustundinni sungu allir saman og svo fórum í nokkra skemmtilega leiki. Þegar samverustundin var búin fórum við í smá gönguferð og að því búnu var haldið yfir í matarskálann. Þar fengu allir eins mikið af "Vatnaskógar-pítsu" og hver gat í sig látið og djús með. Þegar allir höfðu borðað sig sadda fengum við smá frjálsan tíma og var hann nýttur í myndatöku af hópnum, skoðunarferð bak við Gamla Skála og fyrir framan hann. Kl 13:00 fóru allir leikskólarnir saman í gönguferð um skóginn þar sem farið var í leiki og ýmislegt skemmtilegt skoðað meðal annars skoðuðum við "úti" kirkjuna sem Vatnaskógarmenn eiga og svo Boltahúsið, í því fengu allir Vatnaskógar kaffisopa/hressingu en það heitt kakó. Í þessari gönguferð fengum við líka að fræðast um sögu Vatnaskógar. Þegar þessari gönguferð var lokið fórum við í Kapellu Vatnaskógar og þar fengum við einnig smá sögustund. Eftir allar þessar gönguferðir fórum við í íþróttahúsið þar sem var alveg svakalegt fjör, loftkastali, stærðarinnar dýna, kassabílar, boltar, trampólín og svona mætti lengi telja. Í íþróttahúsinu gátu allir fundið eitthvað við sitt hæfi og komum við alveg sveitt yfir í matarskálann þar sem við fengum kærkominn mjólkursopa, súkkulaðiköku og eplabita. Í Matarskálanum var haldin smá kveðjustund þar sem við fengum öll smá plagg til minningar um skemmtilega og ógleymanlega ferð. Það voru svo þreytt börn sem héldu heim á leið frá  Vatnaskógi um fjögurleytið. Börnin voru okkur öllum til sóma og Elín hafði á orði að hún hefði barasta verið að rifna úr stolti af þeim því þau voru svo kurteis og stillt að annað eins hefur varla sést ;)

 

Bréf nr. 2 frá Villimey

Í gær skrifuðu krakkarnir bréf til hennar Villimey, þau báðu hana um að senda okkur mynd af sér og spurðu hana svo ýmis konar spurninga. Í dag (13.03.08) fundu krakkarnir svo annað bréf frá henni Villimey, í því voru tvær myndir af henni og hún þakkaði þeim fyrir sönginn og sagði að þetta hefði verið alveg rosalega fallega sungið og núna heyrði hún í öllum. En krakkarnir hafa verið að hugsa um eitthvað annað undanfarið þegar að samverustundin hefur verið, en núna syngja allir með og hafa gaman af :)

Við tókum nokkrar myndir af bréfinu og krökkunum með bréfið. Smellið á fyrirsögnina og myndirnar birtast.

 

Bréf frá Villimey

Í dag (12.03.08) fundu krakkarnir bréf úti í snjónum. Á umslaginu stóð að þau ættu að opna það í samveru stundinni þannig að krakkarnir og starfsfólkið biðu óþreyjufull eftir því að geta opnað bréfið og séð frá hverjum það var. Í ljós kom að bréfið var frá álfi sem býr í stóra steininum sem er hér fyrir neðan. Í bréfinu stóð:

 

"Hæ krakkar á Skýjaborg. Ég heiti Villimey og ég er álfur og á heima í stóra steininum hérna hinu megin við veginn. Ég hef oft heyrt ykkur syngja, en það er svolítið langt síðan. Viljið þið vera svo væn að syngja svolítið hærra því ég sakna þess svo að heyra öll skemmtilegu lögin. Væruð þið ekki til í að syngja nokkur lög fyrir mig?"

 

Svo voru nokkur óskalög sem hún vildi heyra. Að sjálfsögðu tóku krakkarnir sig til og sungu hátt og snjallt fyrir hana Villimey. Með bréfinu fylgdi fallegt hálsmen og það var handa henni Hildu, því að þegar að Hilda setur það á sig þá getur hún sagt alveg ótrúlegar Bullusögur. Svo ætla krakkarnir að senda henni Villimey bréf á móti og þakka henni fyrir bréfið frá henni :) Við tókum nokkrar myndir af bréfinu og þegar bréfið var opnað. Smellið á fyrirsögnina og myndirnar birtast.

 

Íþróttir í leikskólanum

Stundum förum við í íþróttir hér í leikskólanum. Þá búum við til þrautabraut þar sem eru margar þrautir í röð og við hlustum á tónlist á meðan, þannig að í leiðinni erum við að æfa taktinn.

 

Stóri hópur málar vinalistaverk

Eftir hádegið föstudaginn 22.02.08 var stóri-hópur að mála, þau fengu þau fyrirmæli að mála Vinalistaverk. Við límdum stórt blað á gólfið, fengum okkur málningu og allir máluðu saman á sama blaðið. Útkoman varð alveg glæsileg eins og myndirnar sýna.

 

Hópastarf 26.02.08

Í hópastarfinu í dag var stóri-hópur í málörvunarleikjum og að æfa taktinn, á myndunum má sjá krakkana í leik þar sem þau fela tennurnar og segja ávaxtaheiti um leið og þau slá taktinn á lærin sín. Svo tóku krakkarnir smá sjálfsstyrkingar æfingu þar sem þau stóðu fyrir framan hópinn og tala.

Mið-hópurinn var að mála klemmur í hópastarfinu, það er eiginlega bara undirbúningur því svo ætla þau að föndra úr klemmunum og það á að koma á óvart hvað úr því verður.

Litli-hópur voru í tónlist og voru þau að æfa að slá taktinn eftir fjórðaparts og áttundaparts nótur (ta og títí). Og svo spiluðu krakkarnir á hljóðfæri og hlustuðu á tónlist frá Afríku og Kína.

 

Útileikir í snjónum

Í góðu veðri finnst okkur gaman að fara út og leika okkur í útileikjum á myndunum má sjá okkur leika "nautið í hringnum". Þar sem nautið er innan bandsins og reynir að sleppa út með því að stanga okkur. Svo fórum við í "slangan í hringnum" þar sem að slangan reynir líka að sleppa út með því að snerta  hendurnar okkar. Það sem sést ekki á myndunum er að við fórum í "Týna ber í skessulandi", "Hvað er klukkan, frú Refur" og "Álfar og tröll".

 

Heimsókn frá 1. bekk Heiðarskóla

Til okkar komu fyrrverandi nemendur okkar, núverandi nemendu Heiðarskóla í heimsókn til okkar í leikskólann. Þau komu ásamt kennaranum sínum henni Kötu og lásu fyrir okkur, tóku þátt í vali og við sungum fyrir þau. Á myndunum má sjá marga vini hittast aftur og rifja upp skemmtilega tíma á Skýjaborg.

 

Í útiveru ...

Í útiveru er alltaf mikið gaman og mikið fjör.  Það er nóg um að vera og sérstaklega gaman að sulla í pollunum :-) 

 

Kóræfing hjá Regnboganum

Hún Hanna Þóra hefur verið að æfa krakkana í að syngja í kór.  Börnin eru ótrúlega dugleg og syngja eins og englar með henni.

 

Í leik og starfi - október

 Þessar myndir eru teknar við ýmis tækifæri.  Þær sýna hvað börnin eru að fást við dags daglega hjá okkur.

Íþróttir

Í þessum tíma fórum við í marga skemmtilega leiki t.d. stórfiskaleik, Kínamúrinn, skottaleik, Ertu sofandi Björn bóndi og marga fleiri.