4. janúar 2012 16:56
Tindaskóli er nýtt nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla í Hvalfjarðarsveit
Á 11. fundi sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit var ákveðið að fræðslu- og skólanefnd og allir áheyrnarfulltrúar hennar skyldu vera dómnefnd í nafnasamkeppni um nýtt nafn á sameinaðan leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Nafnasamkeppnin var opin frá skólasetningu grunnskólasviðsins þann 23. ágúst til 1. nóvember 2011 og tók til nemenda og starfsmanna skólanna auk þess sem öllum íbúum Hvalfjarðarsveitar var gefinn kostur á að taka þátt í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins. Alls tóku 128 einstaklingar þátt í keppninni og sendu inn 231 nafnatillögu að 116 nöfnum. Hin tíu manna dómnefnd fjallaði um allar tillögur sem bárust í nafnasamkeppnina. Margar frábærar tillögur bárust og það var sannarlega úr vöndu að ráða hjá dómnefndinni við valið á nafninu.
Nefndin komst þó að lokum að niðurstöðu og nafnið sem varð fyrir valinu var tillaga Jóhönnu Ingisólar Sævarsdóttur, nemanda í 4. bekk grunnskólasviðs skólans, Tindaskóli. Nefndin sagði í rökstuðningi með ákvörðun sinni að hún teldi nafnið vera fallegt og hljómfagurt auk þess sem það ætti að vera auðvelt í framburði fyrir alla aldurshópa. Nafnið vísi til fagurra fjallatinda sveitarfélagsins og náinnar tengingar skólans við náttúru og umhverfi. Sameinaður leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar tók því upp nafnið Tindaskóli frá og með 1. janúar síðastliðnum.