a aa aaa
17. nóvember 2011 14:36

Pappírsgerð í leikskólanum

Undanfarna daga höfum við verið að undirbúa pappírsgerð í leikskólanum. Þar sem við erum Grænfánaskóli þá nýtum við vel þann efnivið sem til fellur og reynum ávallt að endurvinna eða endurnýta alla afganga. Til þess að búa til pappír þurfti fyrst að rífa niður dagblöð og blanda þeim saman við vatn og pappír úr pappírstætaranum. Þvínæst var búinn til grautur úr þessu og mótaður pappír. Þeir sem vildu fengu að gera en einhverjir vildu bara fylgjast með. Úr þessu varð svo til flottur pappír sem við ætlum að skapa eitthvað frábært úr.  Pappírinn úr pappírstætaranum nýtist einnig vel í leik. Sjá myndir á myndasíðunni.