16. nóvember 2011 13:37
Upplestur á Degi íslenskrar tungu
Hefð hefur skapast fyrir því að 3. bekkur úr grunnskólanum komi í leikskólann og lesi fyrir leikskólabörnin á Degi íslenskrar tungu. Í dag komu þau Unndís, Ástdís, Oddur, Kristinn, Emiliano, Helga María og Kristaps og lásu tvær bækur fyrir okkur. Þau stóðu sig með stakri prýði og þökkum við þeim kærlega fyrir heimsóknina. Leikskólabörnin þökkuðu fyrir sig með söng. Sjá má myndir frá heimsókninni á myndasíðunni.