10. nóvember 2011 13:23
Skólaheimsóknin í dag
Skólaheimsóknin í dag var mjög skemmtileg. Í íþróttum vorum við í allskonar leikjum og slökun, síðan fórum við í skólann og fengum ávexti og brauð. Ragna var með söngstund og síðan var frjáls leikur á skólalóðinni frábæru. Í útiverunni prufuðum við að sigla báti niður ánna, gerðum stíflur og læki í sandkassanum, sulluðum hjá tjörninni og lékum okkur í klifurgrindunum. Myndir á myndasíðunni frá frábærri heimsókn.