8. nóvember 2011 14:19
1. bekkur í heimsókn
Fyrsti bekkur kom og heimsótti okkur einn morgun í október. Það var mjög gaman að fá þau í heimsókn og gaman að sjá hversu mikið þau hafa þroskast þessa fáu mánuði sem þau hafa verið í grunnskóla. Þau tóku þátt í valstund hjá okkur og svo kom Sammi með gítarinn sinn. Þau áttu einnig góða útiveru með okkur í góðu veðri. Myndir á myndasíðunni. Takk fyrir heimsóknina fyrsti bekkur.