25. ágúst 2010 14:12
Flokkun
Á Regnboganum erum við farin að flokka það sem sumir myndu kalla rusl en við köllum efnivið. Við söfnum saman efniviðnum sem kemur frá deildinni og eldhúsinu og flokkum það í endurvinnslukassa sem eru á deildinni. Við skoðum hvað við getum notað aftur t.d. í listasmiðju, könnunarleikinn og útiveru en annað fer í endurvinnslutunnuna okkar. Á deildinni flokkum við í fjóra kassa þ.e. pappír, plast, ál og fernur. Börnin eru mjög áhugasöm og það koma fram ýmsar hugmyndir um endurnýtingu.
Einnig erum við farin að flokka lífrænan úrgang sem hænurnar borða ekki s.s. ávaxtahýði og kaffikorg og ætlum við að sjá hvað verður um hann eftir einhvern tíma.