28. júní 2010 15:33
Afhending Grænfána
Á síðastliðnu skólaári hefur leikskólinn Skýjaborg verið "skóli á grænni grein" og stefnt markvisst að því að flagga Grænfánanum og nú er komið að því. Föstudaginn 2. júlí klukkan 11.00 fær leikskólinn afhendan Grænfánann og bjóðum við alla velkomna og fagna með okkur. Að lokinni afhendingu verður boðið upp á kaffiveitingar. Vonumst við til að sjá sem flesta.
Með kveðju börn og starfsfólk Skýjaborgar.