4. júní 2010 11:50
Útskrift elstu barnanna
Þann 27. maí síðastliðinn var formleg útskrift elstu barnanna úr leikskólanum. Börnin fengu bakpoka sem þau höfðu sjálf málað á og útskriftarbók. Leikskólinn færði öllum börnunum birkiplöntu sem þau geta gróðursett heima hjá sér. Svo sungu börnin fyrir gestina og að lokum buðu foreldrarnir upp á kaffihlaðborð.
Leikskólinn vill þakka bæði börnum og foreldrum fyrir samveruna.
Sjá myndir á myndasíðu.