a aa aaa
14. maí 2010 14:46

Útiskólinn í Furuhlíð 10.-13. maí 2010

Mánudaginn 10. maí fluttist öll starfsemi Regnbogans í skógræktina í Furuhlíð.  Börnin mættu beint þangað og byrjuðu daginn á að borða morgunmat úti.  Svo þurfti að setja upp þá aðstöðu sem við þurftum að nota.  Byrjað var á því að setja upp eldstæði.  Börnin hjálpuðu til að finna efni í eldstæðið.  Það þurfti steina, greinar, trédrumba og eldivið.  Börnin voru dugleg að finna efni og svo var hafist handa við að búa til eldstæðið.  Það heppnaðist vel og fyrsta daginn var elduð kjötsúpa og bakað brauð.  Börnin sátu úti við eldstæðið og borðuðu. 

Sara eldar brauð og í pottinum mallar kjötsúpan.

Eftir hádegi var farið í skóginn þar sem börnin bjuggu til tjald.  Tjaldið var búið til úr neti, plasti og greinum.  Svo þurfti hamra, nagla og band.  Þarna gátu börnin setið inni og t.d. var það notað fyrir eina ávaxtastundina. 

Jörgen Fannar hjálpar til við að koma upp tjaldinu.

Það var eitt sem var þó vinsælast að leika sér í meðan á dvöl okkar í skóginum stóð og það var lækurinn.  Þar gátu börnin sullað, búið til stíflur og leikið sér.  Þau gátu endalaust leikið sér við lækinn og auðvitað blotnuðu margir en þá voru fötin bara hengd til þerris í næsta tré og skipt um. 

Þriðjudaginn 11. maí...

 

Þriðjudaginn 11. maí mættum við í skóginn í dásamlegu veðri.  Við byrjuðum daginn á að kveikja upp í eldstæðinu okkar þar sem ljúffengur hafragrautur var eldaður.  Ótrúlegt hvað hafragrauturinn var miklu betri og vinsælli útieldaður.  Börnin völdu sér að leika frjálst í skóginum þennan dag og kanna hvað hann hefði upp á að bjóða.  Börnin léku sér einna mest við lækinn, svo var klifrað í trjánum, leikið í traktorum og ýmislegt fleira.  Í hádeginu elduðum við pylsur sem búið var að vefja deigi á og voru þær mjög vinsælar hjá svöngum skógarbörnum.  Eftir hádegi sóluðum við okkur við lækinn og börnin fengu að vaða berfætt.  Í nónhressingu var búið til heitt kakó og börnunum var boðið inn í hús að borða.  Starfsfólkið hélt nefnilega að börnin væru orðin þreytt og hefðu gott af því að fara aðeins inn að hvíla sig.  En nónhressingin var borðuð í flýti og börnin gátu ekki beðið eftir að komast út aftur að leika sér.

Miðvikudaginn 13. maí mættum við í smá rigningarúða.  Boðið var upp á morgunverð og svo var haldið inn í skóg í skipulagða leiki og gönguferð.  Þar sem mikill tími hafði farið í eldamennskuna var ákveðið að panta mat frá leikskólanum þennan dag og eyða frekar meiri tíma í skóginum.  Börnin borðuðu hádegismatinn í skógarhúsinu, steiktur fiskur ala Gugga. Eftir hádegi bjuggu þau sér til kórónur úr morgunverðarkössum, teppalími og svo skreyttu þau þær með því sem þau fundu í umhverfinu, t.d. laufblöð, strá, steinar o.fl.  Að lokum var kveikt upp í eldstæðinu og sykurpúðar grillaðir, eins konar slútt. 

Þessir 3 dagar í skóginum heppnuðust alveg rosalega vel.  Frábær tilbreyting frá hinu hefðbundna starfi innan veggja leikskólans.  Börnin voru alsæl og starfsfólkið líka og svo lék veðrið við okkur líka.  Viljum við þakka skógræktarfélaginu kærlega fyrir notkunina á Furuhlíðinni og skóginum og stefnum við að því að endurtaka útiskólann að ári.