5. maí 2010 15:40
Útiskóli í Furuhlíð
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag (10.-12. maí) ætlum við að færa starfsemi Regnbogans í Furuhlíð, skógræktina. Börnin sem eru með vistun frá 8.00 eða 9.00 og til 15.00 og 16.00 mæta í Furuhlíð og eru sótt þar. Við verðum úti meirihluta dagsins og þurfa börnin að koma vel klædd og með aukaföt í tösku. Við ætlum að leika okkur, elda úti og vinna hin ýmsu verkefni í skóginum. Ef að spurningar vakna þá endilega hafið samband við starfsfólk Regnbogans.