Nú er gagnslaust að velta vöngum yfir því sem þú ekki hefur.
Hugsaðu heldur um hvað gera má úr því sem fyrir hendi er.
( ERNEST HEMINGWAY )
Börn eru gullnáma. Hlutverk hinna fullorðnu er að fá gullið til að glóa.......Loris Malaguzzi
Óþekktarormarnir - það eru börn nágrannanna........Alexander Baron.
Mikill er sá maður sem ekki glatar barnshjarta sínu.....kínverskt máltæki.
Forlögin gefa okkur ættingja en vinina veljum við sjálf............J.Delitle.
Snúðu andlitinu mót sólinni og þú munt ekki geta séð skuggana.
( HELEN KELLER )
Það þarf oft meiri kjark til að skipta um skoðun heldur en að vera skoðun sinni trúr (Hebbel)
Bestu og fegurstu hluti veraldar er ekki hægt að sjá eða snerta.....heldur finnum við fyrir þeim í hjörtum okkar. -Helen Keller
Flest fólk er um það bil eins hamingjusamt og það ákveður sjálft að vera. -Abraham Lincoln
Enginn maður hefur svo gott minni að hann geti verið árangursríkur lygari. -Abraham Lincoln
Það er auðvelt að segja nokkur hlýleg orð, en bergmál þeirra er svo sannarlega endalaust. -Móðir Teresa
Málverk er ljóð án orða. - Konfúsíus
Þeir geta ekki rúið okkur sjálfsvirðingu okkar ef við afhendum þeim hana ekki. -Mahatma Gandhi
Vingjarnlegt orð sem fellur í dag getur borið ávöxt á morgun. -Mahatma Gandhi
[Ef] þú smælar framaní heiminn, þá smælar heimurinn framn í þig. -Magnús Þór Jónsson (Megas)