25. ágúst 2010 14:05
Tékkar í heimsókn
Síðustu daga hefur 20 manna hópur tékkneskra sveitarstjórnarmanna verið í heimsókn á Vesturlandi til að kynna sér vinnu sveitarfélaganna að umhverfismálum. Hópurinn valdi að fá kynningu frá leikskólanum okkar um Grænfánaverkefnið með áherslu á umhverfið og útikennslu. Viljum við þakka þeim fyrir komuna og þann áhuga sem þeir sýndu starfinu okkar.
Sjá myndir á myndasíðu.