a aa aaa
7. febrúar 2012 02:00

Þorrablót

Í dag var þorrablót leikskólans haldið hátíðlegt. Skemmtunin hófst með samsöng á Dropanum þar sem allir mættu með víkingahattana sína og tóku nokkur vel valin lög saman. Í hádeginu var síðan hefðbundið þorrahlaðborð.  Góðgætið fór misvel í þorrablótsgesti en flestir fundu þó eitthvað sem þeim fannst gott! Sjá má myndir á myndasíðunni. 

meira...
6. febrúar 2012 02:03

Haldið upp á dag leikskólans

Í dag, 6. febrúar, er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur um allt land. Á leikskólasviði Tindaskóla fóru börn og starfsfólk í góða gönguferð um Melahverfið með viðkomu í stjórnsýsluhúsinu. Þar sungu börnin fyrir starfsfólk og gesti. Að lokum skreyttu börnin stéttina fyrir framan stjórnsýsluhúsið með fallegum krítarteikningum. Í tilefni dagsins fengu svo allir súkkulaðimuffins í eftirmat að hætti Guggu. Myndir komnar á myndasíðuna.

meira...
2. febrúar 2012 02:10

Fyrsti íþróttatíminn og skólasamstarf eftir áramót

Það ríkti mikill spenningur fyrir fyrsta íþróttatímanum og skólasamstarfinu í morgun þegar börnin í tveimur elstu árgöngunum fóru með skólarútunni í grunnskólann. Ingibjörg Harpa íþróttakennari tók vel á móti börnunum að vanda og skemmtu þau sér vel í íþróttum. Í grunnskólanum var verið að fagna þorra með viðeigandi þorrablótsskemmtun sem börnin tóku þátt í. Þau héldu þó heim á leið áður en þorrahlaðborðið var opnað - en fá þorramat í leikskólanum í næstu viku!

Sjá myndir á myndasíðu. 

meira...
1. febrúar 2012 10:25

Íþróttir og skólaheimsókn

Á morgun, fimmtudag, hefjast íþróttatímar og skólaheimsóknir aftur. Lagt er af stað frá leikskólanum kl. 9:00 og biðjum við foreldra barna í árgöngum 2006 og 2007 að vera mætt með börnin í leikskólann fyrir þann tíma. 

meira...
20. janúar 2012 01:22

Jóga á Regnboganum

Á fimmtudaginn kom Ingibjörg Harpa íþróttakennari í heimsókn til okkar og var með jógastund á Regnboganum. Stundin vakti mikla lukku og kattliðugir jógasnillingar beygðu sig og teygðu í allar áttir. Sjá myndir í myndasafninu.

meira...
19. janúar 2012 08:16

Kallakaffi í tilefni af bóndadegi

Á morgun, föstudag, bjóðum við öllum pöbbum, öfum, frændum og vinum í kaffi í leikskólanum milli kl. 15 og 16 í tilefni af bóndadegi. Vonumst til að sjá sem flesta. 

meira...
10. janúar 2012 08:02

Vegna ófærðar og slæmrar veðurspár

Vegna ófærðar í sveitarfélaginu og slæmrar veðurspár kemst hluti starfsfólks leikskólans ekki til vinnu. Foreldrar eru vinsamlega beðnir um að taka tillit til þess og hafa börnin heima hafi þeir tök á því þar sem fáliðað verður í starfsmannahópnum í dag.

meira...
5. janúar 2012 12:29

Gleðilegt nýtt ár - 2012

Starfsfólk Tindaskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir samstarfið á liðnu ári. 

meira...