a aa aaa

Könnunarleikur

 

Könnunarleikur er leikaðferð sem notuð er á yngri deild leikskólans. Hún felst í að börnin rannsaka og uppgötva eðli hluta á eigin hátt og á eigin forsendum. Leikefni er mest verðlausir hlutir eins og dósir, pappahólkar, tvinnakefli, steinar og skeljar en líka heimilishlutir eins og klemmur og gardínuhringir. Börnin fá ákveðið pláss þar sem búið er að koma fyrir leikefni, síðan fær barnið ró og næði til þess að kanna og rannsaka. Hlutverk starfsmanns er að fylgjast með og aðstoða ef þarf.  Frágangur og tiltekt er hluti af leiknum og þannig tengjum við saman orð og athafnir.