a aa aaa

Smelltu á fyrirsögnina og skoðaðu myndirnar

 Á Dropanum eru núna 10 börn. 6 börn fædd árið 2009, 4 börn fædd 2010.

Von er á fleiri börnum inn í vetur.

 

Við vorum að fá einingakubba sem við getum haft inni á Dropanum. Í okkar kubbum eru fjögur form, ferningur, ferhyrningur, þríhyrningur og sívalningur. Við ætlum að æfa okkur að í að leika með þessi form og hvernig á að umgangast einingakubba.

 

Gönguferð, könnunarleikur og vatnslitað

Við förum stundum í stuttar gönguferðir í kringum leikskólann og skoðum okkur um. Hinum megin við leikskólann er t.d. ósnortin náttúran þar sem gaman er að leika sér.

 Tína ber á leikskólalóðinni

Í sumar hafa berjarunnarnir okkar vaxið vel og við fengum góða uppskeru af sólberjum sem voru tínd og borðuð beint af runnanum.

 

Leikið með pappírsræmur

Þegar vel liggur á okkur náum við í pappírsæmur úr pappírstætaranum og fyllum herbergi af þeim. Þá er stuð. Þeir sem vilja koma inn að leika, aðrir vilja horfa á. Það er skemmtilegt að henda pappírnum upp í loft og búa til snjó, búa til hrúgur úr honum eða skauta í gegnum hann á gólfinu. Við notum pappírsræmurnar síðan til að búa til endurunninn pappír.

 

Söngsamvera á Regnboganum

Á föstudögum förum við í söngsamveru með Regnboganum. Ýmist á Dropanum eða Regnboganum. Við æfum okkur að syngja fallega saman, förum í hreyfileiki og sprellum. Allar söngsamverur enda á ávaxtastund og svo er farið út.