a aa aaa
28. júlí 2010 07:47

Nýtt skólaár að hefjast

Nú fer sumarfríi að ljúka og hefjum við nýtt skólaár 4. ágúst næstkomandi. Þeir sem eiga eftir að sækja um vistun fyrir næsta skólaár eru hvattir til að gera það sem fyrst en hægt er að sækja um hér á vefsíðunni eða senda tölvupóst á skyjaborg@hvalfjardarsveit.is.

meira...
28. júlí 2010 07:32

Myndir frá afhendingu Grænfánans

2. júlí síðastliðinn fékk leikskólinn Grænfánann afhendann. Margt var um manninn og afhenti Katrín Jakopsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ásamt Orra Páli Jóhannssyni verkefnisstjóra Skóla á grænni grein leikskólanum 100. Grænfánann. Hér er hægt að sjá frétt á landvernd.is. Myndirnar eru í myndasafni eða smella hér.

meira...
28. júní 2010 03:33

Afhending Grænfána

Á síðastliðnu skólaári hefur leikskólinn Skýjaborg verið "skóli á grænni grein" og stefnt markvisst að því að flagga Grænfánanum og nú er komið að því.  Föstudaginn 2. júlí klukkan 11.00 fær leikskólinn afhendan Grænfánann og bjóðum við alla velkomna og fagna með okkur.  Að lokinni afhendingu verður boðið upp á kaffiveitingar.  Vonumst við til að sjá sem flesta.  

Með kveðju börn og starfsfólk Skýjaborgar. 

meira...
28. júní 2010 03:23

Fjöru-og sveitaferð á Súlunes

Í dag fórum við í heimsókn á Súlunes í yndislegu veðri.  Fyrst fórum við í fjöruna og lékum okkur og sulluðum því næst kíktum við á dýrin í sveitinni og enduðum á því að grilla pylsur.  Við fengum frábærar móttökur frá Arnþóri Mána og fjölskyldu.  Takk fyrir okkur.  Sjá myndir á myndasíðu.

meira...
24. júní 2010 01:55

Skýjaborgarleikar 2010

Í gær var íþróttahátíðin Skýjaborgarleikarnir 2010 haldin hátíðleg. Á meðan Droparnir sváfu eftir hádegi reyndu Regnbogabörnin með sér í hinum ýmsu þrautum s.s. húlli, rólustökki, jafnvægisæfingum á slá og blindrabolta. Það er greinilegt að þau koma vel undan vetri börnin þar sem árangurinn var með eindæmum góður þetta árið. Allir fengu síðan viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna.

Sjá má myndir á myndasíðunni. 

meira...
16. júní 2010 01:59

Afmæli

Í dag héldum við upp á sameiginlegt afmæli þeirra barna sem eiga afmæli í júní.  Það var sungið fyrir börnin og svo fengu þau gómsæta afmælisköku.  Til hamingju með afmælið krakkar. 

Sjá myndir á myndasíðu.

meira...
9. júní 2010 02:11

Gróðursetning í leikskólanum

Undanfarið hafa börnin verið dugleg að hjálpa til við að setja niður kartöflur og radísur og kál í forræktun. Þegar kálið og radísurnar fara að gægjast upp úr moldinni verður það fært út í garð þar sem við væntum vænlegrar uppskeru eftir sumarleyfi. Sjá myndir á myndasíðunni

meira...
4. júní 2010 11:50

Útskrift elstu barnanna

Þann 27. maí síðastliðinn var formleg útskrift elstu barnanna úr leikskólanum.  Börnin fengu bakpoka sem þau höfðu sjálf málað á og útskriftarbók.  Leikskólinn færði öllum börnunum birkiplöntu sem þau geta gróðursett heima hjá sér.  Svo sungu börnin fyrir gestina og að lokum buðu foreldrarnir upp á kaffihlaðborð.

Leikskólinn vill þakka bæði börnum og foreldrum fyrir samveruna. 

Sjá myndir á myndasíðu.

meira...